Já það er sko aldeilis komið sumar, allavegana hér í Spónsgerðinu. Við erum búin að hanga úti alla helgina í 40°c hita, við byrjuðum á því að setja upp trampolínið sem er viss sumarboði hér á bæ, restina af helginni var flatmagað á pallinum og í uppblásinni buslulaug. Helgin endaði síðan með því að fara í leikhús og sjá leikritið Fimm stelpur sem var ansi hreint skemmtileg sýning, og ekki skemmir það fyrir að tvær leikkonur ( sem báðar stóðu sig með prýði ) eru af norðausturhorninu. hilsen
Jæja nú hafa menn og konur beðið með mikilli eftirvæntingu eftir að eitthvað verði skrifað inn á þessa bloggsíðu og nú hefur það verið gert og ætlast er til að commentin haldi þessu uppi og eru comment á comment vel þegin því það er minna krefjandi fyrir okkur hjónin. Jákvæðar athugasemdir á okkar atgervi og eiginleika eru sérstaklega velkomnar á okkar heimasíðu. Kærar þakkir fyrir innlitið. lifið heil eða í pörtum….hafið það eins og ykkur listir.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Þetta segir sig allt sjálft.
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
Welcome to WordPress.com. This is your first post. Edit or delete it and start blogging!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »