Jæja eitthvað er fólki farið að lengja eftir fréttum af skemmtilega fólkinu í Spónsgerðinu.
Fyrst ber að nefna að tveir meðlimir fjölskyldunnar bættu við sig einu aldursári um síðustu mánaðarmót, Gunnlaugur Berg varð 8 ára þann 26. júní og Viktor Sindri varð 14 ára þann 28.Húrra húrra húrra.
Við fórum aðra ferð í Vaglaskóg með skuldahalann, þar var spilaður fótbolti og farið í badminton og svo fórum við í tveggja tíma göngutúr eftir gönguleið í skóginum, alveg meiriháttar.
Síðustu helgi fórum við á Bakkaflöt í Skagafirði, amma og afi í Kópavogi komu með nýja flotta hjólhýsið sitt og eyddu með okkur helginni. Við fórum út á Hofsós og skoðuðum Vesturfarasetrið, kíktum á Samgöngutækjasafn Skagafjarðar (Bílasafn ), og enduðum að Hólum þar sem við skoðuðum kirkjuna og fornleifauppgröft.
Milli þess sem þvælst er um allar trissur er líka verið að baksa við að smíða pallinn, og í kring um heitapottinn, þetta þokast, en það sem þetta verður flott þegar þetta verður búið.
Viktor er að fara að vinna í Fellabæ og ætlar að halda til hjá pabba sínum. Sigurður er alltaf jaft skemmtilegur og Gunnlaugur á kafi í boltanum, ætli við fylgjum honum ekki á Nikulásarmótið á Ólafsfirði um næstu helgi svo enn verður lagt af stað með skuldahalann í eftidragi.
Vegna tæknilegra örðugleika verður einhver bið á að settar verði fleiri myndir á síðuna en það er allt í vinnslu.
Komið þið sæl og takk fyrir síðast.
Ætlaði bara að tjá ánægju mína með allar fínu myndirnar í júní-albúminu hjá ykkur… glæsilegar myndir og fallegt fólk:)
Kær kveðja í kotið; HVÞ
Já… er ekkert meira að frétta?
Komið þið sæl kæru hjón og takk fyrir klossana… hennar mömmu.
Á varla til orð yfir allar þessar stórkostlegu færslum á blogginu ykkar…. mjög áhugaverðar pælingar og hugmyndir… já svo ég tali nú ekki um myndirnar
Kv. HVÞ