Loksins var farið í útilegu, strákarnir eru búnir að bíða í allan vetur. Á föstudag var viðeigandi búnaði, mat, drykk og hlýjum fatnaði pakkað í Kíuna, fellihýsið hengt aftaní og brunað af stað, alla leiðina yfir í Vaglaskóg. Þar var tjaldað í í frið og ró innan um tugi annara fellihýsa og hjólhýsa. Arnór, Vala og Ólafur Þór mættu síðar um kvöldið og Ævar (bróðir Völu), Jóhanna og börn voru eina nótt.
Við áttum yndislega helgi, í dásamlegu veðri, fórum í sund á Illugastöðum, grilluðun og láum í sólbaði, og erum við hjónin erum ansi brunnin eftir helgina en það jafnar sig vonandi.
Myndir úr ferðinni á myndasíðunni.
Komið þið sæl kæru hjón.
Gaman að sjá breytta og betri síðu hjá ykkur… og svo ekki sé minnst á að nú er bloggað sem aldrei fyrr.
Vorum að skoða myndirnar og viljum benda ykkur á að ekki undir nokkrum kringumstæðum má birta myndir af húsbóndanum í Spónsgerði svona fáklæddum oftar… saumaklúbburinn minn var í heimsókn og það leið yfir tvær, ein lokaði sig inn á klósti og vill ekki koma fram, þrjár hlupu heim til sín og ein fékk stjarfa.
Kær kveðja frá Nesk.
Hildur Vala
Ég fékk svona skríl eins og ykkur (svona útilegufólk, eins og Halla og Eyvindur den) í garðin hjá mér. Allt í klessu!
Komið þið sæl kæru hjón.
Greinilegt að rembingurinn við að koma síðustu færslum á netið hefur gert út af við ykkur þarna í Spónsgerðinu….. eða hefur ekkert gerst hjá ykkur síðan 15. júní?
Þyrstir í fréttir af ykkur og drengjunum.
Kv. Hildur litla