Ekki verður bloggað í þetta sinn til að útdeila speki eða fréttum, heldur til að gera bara eitthvað fremur en ekki neitt eins og sagt er hjá Intrum en einhverra hluta er mér það fyrirtæki ofarlega í huga nú um stundir.
Annars eru engin tíðindi héðan úr Spónsgerðinu þ.e. allir við heilsu og svo framvegis. Jú út er kominn hljómdiskur með bónda einum frá Hallgilsstöðum 2 í Þistilfirði. Diskurinn er hinn áheyrilegasti og skora ég á tónlistarunnendur að eignast hann hið fyrsta eða meðan hann er heitur
Get ég vottað fyrir um snilli í textasmíðum. Rollur hafa enda verið mörgu skáldinu innblástur í sveitum landsins.
Eru allir ennþá við hestaheilsu? Erum við kannski að tala um Sauðanesstóðið, um miðjan vetur úti á Fonti?
Sæll stóri bró
Er ekkert að frétta úr Spónsgerðinu?
Engin speki?
Kv. HVÞ