Ágætu kjósendur til lands og sjávar. Kosningar eru nýafstaðnar og mér finnst grátlegt að það helsta sem manni dettur í hug þaráeftir er að afnema kosningaréttinn með öllu. Getur verið að fólk sé svo óttaslegið og hrætt við breytingar að það þori ekki að nota atkvæðið til að kalla á breytingar. Er óbreytt ástand það eina sem veitt getur farsæld og hamingju brautargengi? Exum við Dé og tökum enga sénsa því Geir og Davíð eru svo fínir!!!. Exum við Dé þó við strikum út frambjóðendurna og gefum flokknum okkar atkvæði því breytingar eru svo hættulegar!!!. Hlerum almenning á laun svo önnur sjónarmið og skoðanir fái ekki séns!!!. Hleypum ekki lífskjörum lægri stétta upp því þá fáum við minna!!! Skipum okkur í fylkingu með Sjálfstæðisflokknum og þar með erum við engir aumingjar!!!
Niðurstaða: Setjum kúlur merktar framboðunum í Lottóblásarann og látum kylfu ráða kasti og mætum niðurstöðunni með jafnaðargeði og án hræðslu við minnihlutahópa svo sem: Sígauna án lands, Bænda án launa, öryrkja, sjúklinga, frystihúskellingar, ellilífeyrisþega, umhverfissinna og síðast en ekki síst fólks með eigin sýn og hugsjónir til framtíðar barna sinna.
Heyr, heyr!