Feeds:
Posts
Comments

Kjósa nú!

Þá er komið að því að pöpullinn viðri skoðanir sínar,  gangi til kjörklefa og viðri ekki skoðanir sínar.

Ekki líst mér á þessa þjóð ef FLokkurinn fær yfir 20% atkvæða eins  og kannanir síðustu daga benda til. Þá spyr ég:  Hvurslags hálfvitar hafa eiginlega kosningarétt í þessu landi?  Má svo illu venjast að gott þyki eða er þrælsóttinn innbygður í sálirnar svartar og hvítar, örlar ekki á gagnrýnni hugsun eða er trúin svona blind að hún nái út yfir allt sem skynsamlegt er? Það má kannski segja að svo sé komið sem er vegna þess að menn kusu vitlaust  í 18 ár.

Ágætu kjósendur (hér á undan hálfvitar) þið eruð ekki að fara að velja ykkur lið til að vera í.  Þið eruð að fara að kjósa um framtíð lands og þjóðar gerið ykkur grein fyrir því ef þið getið. Verðlaunið ekki spillingar og sjálftökuliðið sem rændi þjóðina og börn okkar tækifærum, allt vegna græðgi, tillits og virðingarleysis við heiðarlegan almenning. Veltið fyrir ykkur hvort eitthvað réttlætir að fyrirtæki rétti stjórnmálamönnum peninga og þá einnig til hvers það er gert. Til góðra verka etv?  Já  já af hverju ættu stjórnmálamenn að þurfa peninga til þess?  Er einkavæðingin þar með talið þegar bankarnir og síðar Síminn voru gefnir réttum mönnum, hrunið sem er niðurstaða hægrimennskunnar, REI málið, mútugreiðslurnar, rán auðlinda og margskonar yfirgangur í krafti fjármagns bara allt í lagi?  Nei ég held nú síður.  Rétt væri að meina FLokknum og framsóknarliðinu að bjóða fram til Alþingis  fyrr en á næsta kjörtímabili í það fyrsta. Þessir menn hafa barasta engan áhuga á fólki, bara peningum og grilli. Peningar fyrst, seðja eigið hungur svo, það er forgangsröðunin. Kunna svo ekki að skammast sín fyrir gjörðir sínar og afleiðingar þeirra, þessir sálarlausu peningapúkar. Hafa  fjármagnseigendur og sjálftökumenn e.t.v. rétt til að skerða lífsgæði annarra án þess að við þeim sé hróflað? Ég segi nei við því og nei við þeirri misskiptingu sem þegar viðgengst.

Einkavæðing: Til helvítis með hana við höfum dæmin. ” Einkavinir reka fyrirtæki betur en aðrir”. Já já horfið um öxl, Róm er brunnin að baki ykkar,  þið  útveguðuð eldsneytið  og helltuð  á bálið allan tímann. Og afhverju má ég ekki og þjóðin öll eiga grunnþónustuna í friði fyrir HH PB SPK og hinum erindrekum auðs. Hafa þeir ekki nóg nú þegar fyrir sig og sína. Þegar stjórnmálamenn eru jafn spilltir og í FLokknum er engin ástæða til að einkavæða eitt eða neitt sem þjóðin á. Burt með helvítis lúkurnar og látið þetta kjurt. “Peningar eru drifkraftur alls” Já já allt var bara drifið til helvítis og almenningur þarf að moka fram í rauðann dauðann

Að dirfast þess að ætla svo að sitja áfram á Alþingi eftir að hafa komið landi og þjóð á kaldan klaka eða hvernig sem helvíti er innréttað, sýnir best virðingarleysið við þjóðina. Veitið þessum eiginhagsmunaseggjum ekki ykkar atkvæði. Nei það hefur engin endurnýjun átt sér stað, engin endurnýjun á þeim öflum sem eiga og reka FLokkinn og framsóknarliðið. Þið sem kusuð þetta lið síðast, horfist í augu við afleiðingarnar, hræðist ekki gangrýni,  farið ekki í afneitun, og reynið ekki að réttlæta Flokkinn það er að berja höfðinu við steininn og þó höfuðið sé tómt hættið samt því skellirnir valda okkur hinum ógleði og verkjum.

Athugið að aðeins einn flokkur af þessum gömlu er óspilltur gefið honum tækifæri til að  okkur að moka  þjóðina upp úr svaðinu, sjálftökuliðið mun ekki snerta á skóflu frmur en fyrri daginn nema fá greitt fyrir. Ætlið þið að sætta ykkur við að spilling þrífist í stjórnkerfinu og er þá spilling í lagi ef hún er í réttum Flokki?

Skattar?  Já gott.  Ég greiði mína skatta glaður því ég trúi enn á réttlæti og jöfnuð þrátt fyrir allt. En ég er ekki glaður þegar FLokkurinn sendir mér og börnum mínum reikninginn fyrir það sem þeir hafa ákveðið að taka sér vegna þess að þeir gátu það og gerðu. Nei græðgin blindaði þá ekki þeir gerðu þetta með opin augu, yfirvegað og skipulega og þeir munu gera þetta aftur um leið og færi gefst …….NEMA við komum í veg fyrir það.

Sumarfrí

Jæja eitthvað er fólki farið að lengja eftir fréttum af skemmtilega fólkinu í Spónsgerðinu.

Fyrst ber að nefna að tveir meðlimir fjölskyldunnar bættu við sig einu aldursári um síðustu mánaðarmót, Gunnlaugur Berg varð 8 ára þann 26. júní og Viktor Sindri varð 14 ára þann 28.Húrra húrra húrra.

Við fórum aðra ferð í Vaglaskóg með skuldahalann, þar var spilaður fótbolti og farið í badminton og svo fórum við í tveggja tíma göngutúr eftir gönguleið í skóginum, alveg meiriháttar.

Síðustu helgi fórum við á Bakkaflöt í Skagafirði, amma og afi í Kópavogi komu með nýja flotta hjólhýsið sitt og eyddu með okkur helginni. Við fórum út á Hofsós og skoðuðum Vesturfarasetrið, kíktum á Samgöngutækjasafn Skagafjarðar (Bílasafn ), og enduðum að Hólum þar sem við skoðuðum kirkjuna og fornleifauppgröft.

Milli þess sem þvælst er um allar trissur er líka verið að baksa við að smíða pallinn, og í kring um heitapottinn, þetta þokast, en það sem þetta verður flott þegar þetta verður búið.

Viktor er að fara að vinna í Fellabæ og ætlar að halda til hjá pabba sínum. Sigurður er alltaf jaft skemmtilegur og Gunnlaugur á kafi í boltanum, ætli við fylgjum honum ekki á Nikulásarmótið á Ólafsfirði um næstu helgi svo enn verður lagt af stað með skuldahalann í eftidragi.

Vegna tæknilegra örðugleika verður einhver bið á að settar verði fleiri myndir  á síðuna en það er allt í vinnslu.

Loksins var farið í útilegu, strákarnir eru búnir að bíða í allan vetur.  Á föstudag var viðeigandi búnaði, mat, drykk og hlýjum fatnaði pakkað í Kíuna, fellihýsið hengt aftaní og brunað af stað, alla leiðina yfir í Vaglaskóg. Þar var tjaldað í í frið og ró innan um tugi annara fellihýsa og hjólhýsa.  Arnór, Vala og Ólafur Þór mættu síðar um kvöldið og Ævar (bróðir Völu), Jóhanna og börn voru eina nótt.

Við áttum yndislega helgi, í dásamlegu veðri, fórum í sund á Illugastöðum, grilluðun og láum í sólbaði, og erum við hjónin erum ansi brunnin eftir helgina en það jafnar sig vonandi.

Myndir úr ferðinni á myndasíðunni.

Já það er kominn tími til að vakna og virkja þessa síðu svo vinir og ættingjar eigi auðveldara með að fylgjast með þessri stórskemmtilegu fjölskyldu.

það er annars allt stórfínt að frétta af okkur, skólinn búinn og fótboltinn byrjaður hjá Gunnlaugi, Viktor að fara til Danmerkur með pabba sínum í eina viku og Sigurður er alltaf jafn skemmtilegur.

Viktor var fermdur þann 26.apríl  og svo höfum verið að skreppa austur í Hallgilsstaði í sauðburð svo að hefur verið nóg að gera hjá okkur.

Við erum að vinna í því að setja link hér til hliðar með myndum þannig að ef hann er ekki kominn þá er hann væntanlegur fljótlega.

Ekki verður bloggað í þetta sinn til að útdeila speki eða fréttum, heldur til að gera bara eitthvað fremur en ekki neitt eins og sagt er hjá Intrum en einhverra hluta er mér það fyrirtæki ofarlega í huga nú um stundir.

Annars eru engin tíðindi héðan úr  Spónsgerðinu þ.e. allir við heilsu og svo framvegis. Jú út er kominn hljómdiskur með bónda einum frá Hallgilsstöðum 2 í Þistilfirði. Diskurinn er hinn áheyrilegasti og skora ég á tónlistarunnendur að eignast hann hið fyrsta eða meðan hann er heitur

Síminn Júdas

Hefur enginn rekið augun í plottið hjá símanum? Hefur enginn uppgvötvað hvers vegna  Júdas er með Vodafone kort/síma.

Og : Skúbb sögunnar. Allir blaðamenn á Íslandi hneyklast á þessum klaufaskap hjá Símanum. Eru Íslendingar fæddir hálfvitar eða er heimskan áunnin ?  Besta auglýsing þessa árs. Hæfniskröfur til blaðamanna?. Lesið (með augun á Íslenskunni) grein frbl  12.09 um reynsluakstur Toyota bíls.

Lifið heil, ekki í pörtum.

Ættingjar

Vorum að koma af ættarmóti einstaklega vel heppnuðu og ánægjulegu í alla staði. Veit ekki hvers vegna en Sigurður Steinar  (‘03)  sagði;  Ég vildi óska þess að ég væri Indíáni. Að vísu er þetta slitið úr samhengi.

Ótrúlegt samt hvursu margt er af skemmtilegu fólki í ættinni og er ég engin undatekning þar á nema síður sé (ekki er ég hár eða með hár en kannski síður)

Toppurinn

Getur 44 ára maður sem aldrei hefur hreyft á sér rassgatið klifrað upp á 1570 metra hátt fjall yfir kletta og klungur krapa og drullu.

Svar: pís of keik

Ekki annað…..

Það er veðrið sem engan svíkur. Það er aldagömul hefð fyrir því að sumarið komi seint, illa og bara helst ekki neitt. Þar sem þetta er nú upplýst, þarf enginn að vera svekktur þó veðrið sé bara eins og það er.

Ágætu kjósendur til lands og sjávar.  Kosningar eru nýafstaðnar og mér finnst grátlegt að það helsta sem manni dettur í hug þaráeftir er að afnema kosningaréttinn með öllu.  Getur verið að fólk sé svo óttaslegið og hrætt við breytingar að það þori ekki að nota  atkvæðið til að kalla á breytingar. Er óbreytt ástand það eina sem veitt getur farsæld og hamingju brautargengi? Exum við Dé og tökum enga sénsa því Geir og Davíð eru svo fínir!!!. Exum við Dé þó við strikum út frambjóðendurna og gefum flokknum okkar atkvæði því breytingar eru svo hættulegar!!!. Hlerum almenning á laun svo önnur sjónarmið og skoðanir fái ekki séns!!!.  Hleypum ekki lífskjörum lægri stétta upp því þá fáum við minna!!! Skipum okkur í fylkingu með Sjálfstæðisflokknum og þar með erum við engir aumingjar!!!

Niðurstaða: Setjum kúlur merktar framboðunum í Lottóblásarann og látum kylfu ráða kasti og mætum niðurstöðunni með jafnaðargeði og án hræðslu við minnihlutahópa svo sem: Sígauna án lands, Bænda án launa, öryrkja, sjúklinga, frystihúskellingar, ellilífeyrisþega, umhverfissinna og síðast en ekki síst fólks með eigin sýn og hugsjónir til framtíðar barna sinna.

Older Posts »